top of page

Bréf til jólasveinsins
Eftir P.B. Phillips
Kæri jólasveinn,
Ég vona að þið frúin hafið það bæði gott og séuð hamingjusöm.
Ég skrifa þér af einlægni, ekki til að betla, skríða eða vera væminn.
Ég var óþekkur á þessu ári, ég veit að ég stóð mig langt undir væntingum.
Ég held að það hafi verið af því að ég tæmdi, nánast hvern einasta bar.
Til að bæta fyrir það lofa ég að vera sérstaklega góður næstu tólf mánuðina.
Jafnvel í kosningum mun ég ekki kalla stjórnmálamenn, hóp af eigingjörnum smáþrjótum.
Mig langar ekki í mikið í jólagjöf í ár.